Golfkennsla

Hjá Nesklúbbnum er lögð rík áhersla á vandaða og faglega golfkennslu fyrir kylfinga á öllum stigum. Guðmundur Örn Árnason, PGA golfkennari og íþróttafræðingur, er yfirkennari klúbbsins og fer öll golfkennsla á æfingasvæðum klúbbsins í gegnum hann.

Í boði er meðal annars:

  • Einka- og parakennsla fyrir kylfinga á öllum getustigum
  • Hóptímar og námskeið, annað hvort auglýst eða sérsniðin fyrir hópa
  • Fyrirtækjanámskeið fyrir allt að 24 manns

Nánari upplýsingar má finna á gudmundurorn.is en einnig er hægt að hafa beint samband í gegnum netfangið gudmundur@nkgolf.is eða í síma 849-1996.

Tímabókanir fara fram á noona.is/gudmundurorn.

Menntun og réttindi:

  • PGA golfkennari
  • M.Sc. í íþróttavísindum og þjálfun
  • M.Ed. í heilsuþjálfun og kennslu
  • TrackMan Level 2 Professional
  • TPI Level 1 Certified

Bóka tíma