Draumahöggið

Draumahöggið er árlegt mót sem Nesklúbburinn heldur í samstarfi við Einherjaklúbbinn og Golfsamband Íslands.

Þeir kylfingar sem fóru holu í höggi á fyrirfram ákveðnu tímabili og hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum eiga möguleika á því að vinna gjafabréf frá VITA eða jafnvel Mercedes-Bens bifreið frá ÖSKJU.

Þann 3. september 2022 geta þeir sem hafa skráð holu í höggi hjá Einherjaklúbbnum á tímabilinu 1. september 2021 – 31. ágúst 2022 mætt á Nesvöllinn.  Þar munu allir allir fá eitt högg á braut 2 og sá sem er næstu holu vinnur gjafabréf frá VITA.

Fyrir holu í höggi í þessari einu tilraun fær viðkomandi Mercedes Benz bifreið til eignar*

Nánari upplýsingar um mótið munu birtast á Golfbox þegar nær dregur.

Leikreglur verða útskýrðar nákvæmlega á staðnum en gott er fyrir þátttakendur að vita að:

  • Allir þátttakendur fá eitt högg óháð því hversu oft þeir hafa farið holu í höggi á árinu.
  • Verði tveir eða fleiri nákvæmlega jafn langt frá þegar að allir hafa lokið keppni þeir sem næst voru slá aftur til að úrskurða um sigurvegara.
  • Fari tveir eða fleiri holu í höggi munu þeir slá aftur til að úrskurða um sigurvegara og þ.m.t. hver fær Mercedes-Benz bifreið frá Öskju.
  • Nauðsynlegt er að hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum til þess að hafa þátttökurétt í mótinu.
  • Það er frítt í mótið, þ.e. þátttökugjald er kr. 0

Hlökkum til að sjá ykkur á Nesvellinum þann 3. september