Fjórða púttmót vetrarins fór fram síðasta sunnudag. Í karlaflokki sigraði Eyjólfur Sigurðsson á 29 höggum og í kvennaflokki var það Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir sem sigraði á 31 höggi. Það voru tvær konur jafnar á 31 höggi en eftir útreikninga var það Áslaug Dóra sem bar sigur úr býtum.
Aukaverðlaunin þennan sunnudaginn hlaut Grímheiður Jóhannsdóttir.
Sigurvegarar geta sótt vinningana hjá Hjalta í Risinu.