Úrslit í opna Forval kvennamótinu

Nesklúbburinn

Opna FORVAL kvennamótið fór fram á Nesvellinum í gær.  Rúmlega 91 kona voru skráðar til keppni og þrátt fyrir að veðrið hafi verið í verri kantinum voru 85 dugmiklar konur sem luku leik.  Mótið var í alla staði hið glæsilegasta.  Keppt var eftir punktafyrirkomulagi þar sem konunum var skipt upp eftir forgjöf í þrjá flokka og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.  Þá voru veitt nándarverðlaun á par 3 holum og fyrir lengsta upphafshögg á fyrstu holu.  Í mótslok var borðhald fyrir þær sem vildu og stórglæsileg verðlaunaafhending þar sem m.a. var dregið úr tugum skorkorta og gengu allar konur út með vinning.  Helstu úrslit í mótinu urðu annars eftirfarandi:

NÁNDARVERÐLAUN:

2./11. HOLA: HELLA WILLIG, GR  – 2,01 METRA FRÁ HOLU

5./14. HOLA: SYLVÍA B. GÚSTAFSDÓTTIR, GR – 3,60 METRA FRÁ HOLU


FORGJAFARFLOKKUR III

1. SÆTI: ELÍSABET JÓNSDÓTTIR, GR – 39 PUNKTAR

2. SÆTI: ÁSTA BJARNADÓTTIR, GO – 37 PUNKTAR

3. SÆTI: KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR, NK – 37 PUNKTAR

 

FORGJAFARFLOKKUR II

1. SÆTI: RAGNHILDUR GOTTSKÁLKSDÓTTIR, NK – 40 PUNKTAR

2. SÆTI: LILJA ELÍSABET GARÐARSDÓTTIR, GO – 38 PUNKTAR

3. SÆTI: FREYJA SVEINSDÓTTIR, GKG – 37 PUNKTAR

 

FORGJAFARFLOKKUR I

1. SÆTI: HELGA KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR, NK – 39 PUNKTAR

2. SÆTI: SIGRÚN EDDA JÓNSDÓTTIR, NK – 37 PUNKTAR

3. SÆTI: HULDA HALLGRÍMSDÓTTIR, GO – 36 PUNKTAR