Einvígið á Nesinu fer fram á mánudaginn

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður haldið mánudaginn 5. ágúst, á Frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við ARION BANKA og er þetta í tuttugasta og áttunda skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og leika þeir að þessu sinni í þágu Umhyggju, félags sem vinnur að hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00. Fyrstu tvær holurnar verða leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hið hefðbundna „shoot-out“, eða útsláttarskeppni, þar sem þau, sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut, falla úr leik.

Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með nokkrum fremstu kylfingum þjóðarinnar leika í þágu góðs málefnis.

Arion Banki, styrktaraðili Einvígsins á Nesinu, veitir í mótslok forsvarsaðila Umhyggju ávísun upp á eina milljón króna.

Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2024 eru:

Aron Emil Gunnarsson, GOS
Aron Snær Júlíusson, GKG
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Karlotta Einarsdóttir, NK
Kjartan Óskar Guðmundsson, NK
Logi Sigurðsson, GS
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR

Sigurvegarar frá upphafi:

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015       Aron Snær Júlíusson
2016       Oddur Óli Jónasson
2017       Kristján Þór Einarsson
2018       Ragnhildur Sigurðardóttir
2019       Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020       Haraldur Franklín Magnús
2021       Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2022        Bjarni Þór Lúðvíksson
2023        Birgir Björn Magnússon