Stjórn Nesklúbbsins – Golfklúbbs Ness boðar hér með til aðalfundar vegna starfsársins 1. nóvember 2023 til 31. október 2024. Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. nóvember 2024 í Hátíðarsal Gróttu á efri hæð íþróttahússins á Suðurströnd 8, Seltjarnarnesi og hefst kl. 19:30.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
Fundarsetning
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Lögð fram skýrsla formanns
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.
- Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
- Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
- Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðenda reikninga skv. 9. gr. þessara laga.
- Önnur mál.
Samkvæmt 2.mgr. 9.gr. laga klúbbsins ber að tilkynna framboð til stjórnar með aðalfundarboði á heimasíðu. Í kjöri eru formaður til eins árs og þrír stjórnarmenn til tveggja ára. Kjörnefnd hafa borist tilkynningar um framboð til stjórnar Nesklúbbsins frá eftirtöldum félögum.
Til stjórnar til tveggja ára: Núverandi stjórnarmenn þau Árni Vilhjálmsson, Jóhann Karl Þórisson og Þórkatla Aðalsteinsdóttir hafa öll boðið sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu til tveggja ára. Þá hafa þeir Bjartur Logi Finnsson og Georg Haraldsson einnig boðið sig fram til tveggja ára stjórnarsetu.
Þá hefur Þorsteinn Guðjónsson, formaður, tilkynnt að hann sé í framboði til áframhaldandi formennsku næsta árið.
Önnur framboð hafa ekki borist og er framboðsfresti lokið.
Fundargögn, þ.m.t. ársskýrsla og -reikningar félagsins og kynning á frambjóðendum til stjórnar klúbbsins verða birt á heimasíðu klúbbsins eigi síðar en miðvikudaginn 27. nóvember n.k. Fundurinn verður pappírslaus (fyrir utan framkvæmd við kosningu til stjórnar) og er félagsmönnum bent á að kynna sér gögnin á heimasíðunni.
Seltjarnarnesi, 21. nóvember 2024
Stjórn Nesklúbbsins