Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins haldinn í gær

Nesklúbburinn Almennt

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins fyrir rekstrarárið 2025 var haldinn í Hátíðarsal Gróttu í gær, fimmtudaginn 27. nóvember.

Helstu dagskrárliðir voru þeir að Þorsteinn Guðjónsson formaður klúbbsins gerði grein fyrir skýrslu stjórnar og þá gerði Guðrún Valdimarsdóttir, gjaldkeri klúbbsins fyrir reikningum.  Reikningarnir voru svo lagðir fram til atkvæðagreiðslu af fundarstjóra og voru þeir samþykktir samhljóða.

Helstu tölur úr rekstri klúbbsins voru að rekstrartekjur voru rúmar 204 milljónir og rekstrargjöld tæplega 163 milljónir.  Eftir framkvæmdir og fjárfestingar var hagnaður á starfsemi klúbbsins fyrir rekstrarárið 2025 um 17 milljónir. Sjá má reikninga félagsins fyrir árið 2025 með því að smella hér.

Samkvæmt 9. grein í lögum félagsins skal á aðalfundi kosið um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára.  Fyrir þennan aðalfund bárust til kjörnefndar þrjú framboð innan tilskyldra tímamarka skv .lögum félagsins.  Þau Ásgeir G. Bjarnason, Elsa Nielsen og Guðrún Valdimarsdóttir gáfu öll kost á sér til stjórnarsetu næstu tveggja ára.  Þar sem engin önnur framboð bárust voru þau réttkjörin til stjórnarsetu til næstu tveggja ára.

Þá gaf Þorsteinn Guðjónsson áfram kost á sér til embættis formanns.  Ekki bárust fleiri framboð og Þorsteinn því réttkjörinn formaður Nesklúbbsins næsta starfsár.  Stjórn Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins fyrir rekstrarárið 2026 verður því þannig skipuð.  Þorsteinn Guðjónsson, formaður og aðrir í stjórn í stafrófsröð: Árni Vilhjálmsson, Ásgeir Bjarnason, Elsa Nielsen, Guðrún Valdimarsdóttir, Jóhann Karl Þórisson og Þórkatla Aðalsteinsdóttir.

Á fundinum voru ákveðin félagsgjöld fyrir árið 2026 um 7,5% hækkun að meðaltali sem tóku mið af fyrirliggjandi fjárhagsáætlun stjórnar ásamt hækkun á GSÍ félagsgjaldinu.  Fundarstjóri bar tillöguna upp og var hún einnig samþykkt.  Félagsgjöld og sundurliðun þeirra fyrir árið 2025 má sjá með því að smella hér: