Innheimta árgjalda 2026 og úrsögn úr klúbbnum

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæri félagi í Nesklúbbnum,

Nú líður senn að innheimtu félagsgjalda 2026.  Félagsgjöld fyrir árið 2026 voru samþykkt á aðalfundi klúbbsins þann 27. nóvember síðastliðinn og má sjá hér á heimasíðunni undir um Nesklúbbinn/gjaldskrá (smella hér)

Félagsgjöld verða eins og í undanfarin ár innheimt í gegnum vefforritið SPORTABLER.  Viljirðu ráðstafa greiðslufyrirkomulagi sínu sjálf/ur muntu þurfa að skrá þig inn á SPORTABLER og ráðstafa þínu greiðslufyrirkomulagi. Ítarlegar leiðbeiningar verða gefnar út þegar búið er að uppfæra breytingar á gjöldunum inni á Sportabler og verður það tilkynnt á heimasíðu klúbbsins og með tölvupósti þegar allt er tilbúið – þangað til þær upplýsingar berast þarftu ekki að gera neitt.

Inni á heimasíðu klúbbsins undir Um Nesklúbbinn/gjaldskrá má einnig sjá slóð fyrir almennar leiðbeiningar um Sportabler.

Í boði verður fá greiðsluseðla í heimabanka eða greiða með greiðslukorti og hægt er að skipta greiðslum niður í allt að 8 skipti.  ATH: óháð því hvaða leið þú valdir í fyrra þá þarftu að fara í gegnum ferlið aftur fyrir næsta tímabil. 

Þeir sem ekki verða búnir að ráðstafa greiðslufyrirkomulagi sínu þann 15. desember munu fá greiðsluseðla í heimabanka, skipt niður í fjórar greiðslur.

Fyrsti gjalddagi allra greiðsluleiða er 1. janúar.

Ákveði félagsmaður að hætta í klúbbnum væri heppilegasti tíminn til þess að láta vita af því sem allra fyrst.  Berist úrsögn eftir þann tíma fást félagsgjöld ekki endurgreidd nema gegn framvísun læknisvottorðs.  Úrsögn skal tilkynna á netfangið: nkgolf@nkgolf.is

ATH: Ef mögulega þú hefur verið búinn að tilkynna áður að þú ætlir ekki að vera með aðild 2026 – vinsamlegast sendu okkur engu að síður tölvupóst á netfangið: nkgolf@nkgolf.is