62. Meistaramóti Nesklúbbsins lauk í fyrr í kvöld og eru nýkrýndir klúbbmeistarar þau Skarphéðinn Egill Þórisson sem sigraði í Meistaraflokki karla og Karlotta Einarsdóttir sem sigraði í Meistaraflokki kvenna. Karlotta sem var að vinna sinn 22. Klúbbmeistaratitil lék hringina fjóra á 303 höggum. Í karlaflokki lék Skarphéðinn holurnar 72 á fjórum höggum undir pari eða á 276 höggum. Nesklúbburinn óskar þeim innilega til hamingju með sigurinn. Nánari úrslit frá mótinu má nálgast á golf.is eða með því að smella hér.

