Hið árlega mót „DRAUMAHÖGGIГ fer fram á Nesvellinum laugardaginn 5. sept. og er 9. brautin lokuð á meðan mótinu stendur sem er frá kl. 11.00 til ca. 12.00/12.30.
DRAUMAHÖGGIÐ ER ÁRLEGT MÓT HJÁ NESKLÚBBNUM Í SAMSTARFI VIÐ EINHERJAKLÚBBINN, EVRÓPUFERÐIR, ÖSKJU OG VÖRÐ
Þeir kylfingar sem hafa farið holu í höggi á tímabilinu 1. september 2025 – 31. ágúst 2026 og hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum hafa rétt til þátttöku og eiga möguleika á því að vinna gjafabréf frá EVRÓPUFERÐUM og Mercedes-Benz bifreið frá ÖSKJU!
Allir fá eitt högg á braut 9 og sá sem er næstur holu fær glæsilegan vinning frá EVRÓPUFERÐUM. Fyrir holu í höggi í þessari einu tilraun fær viðkomandi Mercedes Benz bifreið til eignar*
Mótanefnd

