Aðalfundurinn 2019

Nesklúbburinn

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins fyrir árið 2019 verður haldinn í golfskála félagsins fimmtudaginn 28. nóvember nk. kl. 19.30.

Dagskrá:

  1. Fundarsetning
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Lögð fram skýrsla formanns
  4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.  Reikningar bornir undir atkvæði.
  6. Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.
  7. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
  8. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
  9. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðenda reikninga skv. 9. gr. laga.
  10. Önnur mál.
Framboð til formanns: Kristinn Ólafsson
Framboð til stjórnar:
Áslaug Einarsdóttir
Guðrún Valdimarsdóttir
Þorsteinn Guðjónsson

Fyrir sitja í stjórn þeir Árni Vilhjálmsson, Jóhann Karl Þórisson og Stefán Örn Stefánsson og verður lögum samkvæmt  ekki kosið um þeirra sæti í ár.

Samkvæmt 4. grein laga félagsins verða endurskoðaðir reikningar bornir undir fundinn.  Rekstrar- og efnahagsreikning fyrir árið 2019 má nú nálgast hér inni á heimasíðunni undir „um NK/skjöl“ eða með því að smella hér.

Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á fundinn sem eins og áður segir verður haldinn í golfskálanum á fimmtudaginn kl. 19.30.