
Golfleikjanámskeið 2026
Nesklúbburinn býður upp á golfleikjanámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 7-14 ára, óháð því hvort að þau séu meðlimir í Nesklúbbnum eða ekki. Markmiðið með námskeiðunum er að kenna undirstöðuatriðin í golfleik, helstu golfreglur, framkomu og umgengni á golfvelli.
Æskilegt er að þeir krakkar sem eiga kylfur taki þær með sér og noti á námskeiðunum. Klúbburinn lánar þó kylfur fyrir þá sem ekki eiga án endurgjalds.
Hvert námskeið er í viku í senn.
Námskeið 2026
Námskeið 1. 11.-12. júní kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 2. 15.-19. júní kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 3. 29. júní -3. júlí kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 4. 13.-17. júlí kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 5. 20. -24. júlí kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 6. 4.-7. ágúst kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 7. 10.-14. ágúst kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 8. 17.-21. ágúst kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Verð á fimm daga námskeið er kr.20.000.- pr. námskeið.
*Gjald fyrir fjögurra daga námskeið er kl. 16.000.- pr. námskeið.
Innifalið í gjaldinu er nestispakki sem inniheldur hvern dag:
Rúnstykki með skinku og osti, ávaxtadrykkur og ávextir. Einnig er pylsuveisla síðasta dag hvers námskeiðs.
Opnað verður fyrir skráningu á golfleikjanámskeið Nesklúbbsins miðvikudaginn 29. apríl kl. 09.00 og fer skráningin fram í gegnum Sportabler https://www.sportabler.com/shop/nesklubburinn
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda á netfangið steinn@nkgolf.is eða hringja í síma 823-7606
