Úrslit í OPNA NESSKIP

OPNA NESSKIP mótið fór fram á Nesvellinum í dag.  Mótið var 18 holur þar sem leikið var eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig voru veitt nándarverðlaun á par 3 holum.  Allur ágóði af mótinu rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins.

Helstu úrslit í mótinu voru eftirfarandi:

Punktakeppni:

  1. sæti: Bjargey Aðalsteinsdóttir, NK – 43 punktar
  2. sæti: Halldór Jón Halldórsson, GFH – 43 punktar
  3. sæti: Örn Árnason, GM – 43 punktar

Besta skor: Gauti Grétarsson, NK – 69 högg

Nándarverðlaun:

2. braut: Tómas Már Sigurðsson, NK – 83cm. frá holu
5. braut: Sveinn Þór Sigþórsson, NK – 2,78 metra frá holu
9. braut: Gísli Freyr Ólafsson, GKG – 83cm frá holu

Vinningshafar geta nálgast verðlaun sín frá og með fimmtudeginum 9. júní.