Fyrsta þriðjudagsmót NK-kvenna verður haldið á morgun, þriðjudaginn 19. maí.
Eins og venjulega er bara að mæta þegar hentar eftir kl. 09.00.
Skráningarblöð eru í kassanum góða í veitingasölunni. Eins og kom fram á kick-off kvöldunum mun Áslaugarbikarinn nú verða afhentur fyrir 9 holur (sjá nánar nkgolf/um nk/kvennastarf)
Munið að skrá ykkur á rástíma sem fyrst í gegnum Golfbox.
Þátttökugjald er kr. 1.000 og greiðist með seðlum í umslag í kassanum.
Einfalt, hefðbundið og bara gaman – mætum allar.