BYKO mótið verður haldið á morgun. Við aftur að keyra mótið í gengum GOLFBOX og er mikilvægt að keppendur hafi eftirfarandi til hliðsjónar.
1. Rástímar hafa verið birtir á Golfbox
2. Skráning á skori. Nú hafa allir þátttakendur fengið tölvupóst og SMS með slóð („link“). Þegar þið byrjið að spila í mótinu takið þið símann með ykkur og skráið skorið í mótinu í símann í gegnum þennan link. Ath. nóg er að einn í hverju holli taki það að sér en að sjálfsögðu geta allir gert það.
3. Af gefinni reynslu munum við biðja ykkur um að fyllal út skorkort líka. Skorið í símanum mun telja en við tökum þetta öryggisatriði ef eitthvað skyldi klikka.
4. Á meðan að mótinu stendur mun Live skor varpast á sjónvarpsskjáinn í skálanum og eins geta keppendur fylgst með stöðunni í mótinu í símanum.
Við biðjum ykkur að taka þátt í þessu með okkur á meðan að við erum að læra á kerfið. Það mun gera allt mótahald bæði auðveldara og flottara í framtíðinni.
Mótanefnd