Íslandsmót golfklúbba 2020 fer fram nú um helgina. Keppnin sem áður hét Sveitakeppni GSÍ er keppni á milli allra golfklúbba, skipt upp eftir deildum þar sem lið hvers klúbbs er skipað 6-9 kylfingum. Þessa helgina er keppt á milli A-sveita klúbbanna og tekur Nesklúbburinn að sjálfsögðu þátt. Kvennasveitin keppir í 2. deild á Vatnsleysuströnd og karlasveitin í 2. deild á Garðavelli á Akranesi. Allar upplýsingar nánari upplýsingar um fyrirkomulag og úrslit má nálgast á golf.is.
Liðsskipan A-sveitar kvenna:
Elsa Nielsen
Erla Ýr Kristjánsdóttir
Helga Kristín Gunnlaugsdóttir
Karlotta Einarsdóttir
Matthildur María Rafnsdóttir
Ragna Björg Ingólfsdóttir
Liðsstjóri: Erla Ýr Kristjánsdóttir
Liðsskipan A-sveitar karla:
Guðmundur Örn Árnason
Kjartan Óskar Guðmundsson
Kristján Björn Haraldsson
Nökkvi Gunnarsson
Magnús Máni Kjærnested
Orri Snær Jónsson
Ólafur Marel Árnason
Steinn Baugur Gunnarsson
Liðsstjóri: Nökkvi Gunnarsson