Eins og áður hefur komið fram verður konukvöld Nesklúbbsins haldið föstudaginn 16. mars nk. í golfskálanum. Dagskráin er með glæsilegra móti og því um að gera fyrir allar NK-konur að skrá sig sem fyrst og taka jafnvel með sér eina eða tvær vinkonur.
Dagskrá:
– Húsið opnar kl. 19.00 með fordrykk í boði kvennanefndar
– Borðhald hefst kl. 19.30
– Veislustjóri: Petrea I. Jónsdóttir, félagi í klúbbnum
– Tískusýning
– Valgeir Guðjónsson skemmtir
– Happdrætti með glæsilegum vinningum
– Veisluhlaðborð að hætti Krissa
Verð aðeins kr. 5.500
Skráning er hafin á nkkonur@hotmail.com
Kvennanefnd
