Frábært konukvöld framundan

Nesklúbburinn

Eins og áður hefur komið fram verður konukvöld Nesklúbbsins haldið föstudaginn 16. mars nk. í golfskálanum.  Dagskráin er með glæsilegra móti og því um að gera fyrir allar NK-konur að skrá sig sem fyrst og taka jafnvel með sér eina eða tvær vinkonur. 

 

Dagskrá:

– Húsið opnar kl. 19.00 með fordrykk í boði kvennanefndar
– Borðhald hefst kl. 19.30
– Veislustjóri: Petrea I. Jónsdóttir, félagi í klúbbnum
– Tískusýning
– Valgeir Guðjónsson skemmtir
– Happdrætti með glæsilegum vinningum
– Veisluhlaðborð að hætti Krissa

Verð aðeins kr. 5.500

Skráning er hafin á nkkonur@hotmail.com

Kvennanefnd