Fyrsta kvennamótið fór fram í gær í frekar köldu og vindasömu veðri. Það voru einungis tvær konur sem léku 18 holur en átta til viðbótar tóku þátt í 9 holu mótinu. Skor og punktafjöldi keppenda voru dálítið í takt við aðstæðurnar en þó náðist ágætis árangur inn á milli og meðal annars náði ein að lækka sig í forgjöf. Þar var á ferð Ragna Björg Ingólfsdóttir sem sigraði 9 holu mótið en hún fékk 19 punkta. Helstu úrslit í mótinu voru annars eftirfarandi:
18 HOLUR
- SÆTI ? ODDNÝ RÓSA HALLDÓRSDÓTTIR ? 26 PUNKTAR
- SÆTI ? ÞURÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR – 25 PUNKTAR
9 HOLUR
- SÆTI ? RAGNA BJÖRG INGÓLFSDÓTTIR ? 19 PUNKTAR
- SÆTI ? MAGNDÍS MARÍA SIGURÐARDÓTTIR ? 16 PUNKTAR
- SÆTI ? SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR – 16 PUNKTAR
Besta skor á 18 holum: Oddný Rósa Halldórsdóttir, 101 högg.*
*Oddný og Þuríður voru á sama skori en Oddný var með betri seinni hring.