Við eigum 60 ára afmæli – Vertu með

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Þau merku tímamót eru í ár að Golfkúbbur Ness – Nesklúbburinn varð 60 ára í apríl síðastliðinn.  Af því tilefni ætlum við að halda afmælisgolfmót þann 30. júní næstkomandi.  Mótið er innanfélagsmót og ætlum við að fjölmenna og fagna þessum merkisáfanga klúbbsins saman.

Ræst verður út frá klukkan 08.00 og er að sjálfsögðu öllum félagsmönnum boðið að taka þátt og heiðra klúbbinn okkar.

Hámarksforgjöf gefin hjá öllum kylfingum er 28 og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og besta skor í höggleik. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum valla.

Búið er að opna fyrir skráningu á golfbox frá klukkan 08.00-12.00 og verður að sjálfsögðu opnað fyrir fleiri rástíma ef þess gerir þörf.

Mótsgjald er aðeins kr. 2.000 og innifalið er:

Vegleg afmælisteiggjöf og afmæliskaka og kaffi að hring loknum.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og fögnum saman,

Með golfkveðju,
Stjórn Nesklúbbsins