Old Course úr innsta hring – Oliver Horovitz, höfundur bókarinnar „An American Caddie in St. Andrews“ er væntanlegur til landsins
Oliver Horovitz, rithöfundur og kylfusveinn á St. Andrews er væntanlegur til landsins.
- Höfundur bókarinnar An American Caddie in St. Andrews.
- Útskrifaðist frá Harvard en fór að vinna sem kylfuberi í St. Andrews
- Hvalreki fyrir áhugamenn um Skotland, golf og góðar bækur
- Kynnir bókina og segir frá starfi sínu sem kylfusveinn á Old Course
- Þriðjudaginn 26. nóvember á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, í Víkingasal 4. Aðgangur ókeypis
- Húsið opnar kl. 20:00. Viskísmökkun og púttáskorun fram að kynningu
- Höfundur selur og áritar bækur á staðnum. Tilvalin jólagjöf fyrir golfarann
Oliver Horovitz er rithöfundur, kvikmyndagerðarmaður og kylfusveinn á „Old Course“ í St. Andrews í Skotlandi. Oliver er væntanlegur til landsins og mun halda kynningu á bók sinni, „An American Caddie in St. Andrews“ í Víkingasal 4, á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þriðjudaginn 26. nóvember kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis.
Auk þess að gefa út bókina „An American Caddie in St. Andrews“ hefur hann skrifað um reynslu sína sem kylfusveinn fyrir tímaritin Sports Illustrated, Golf World og Golf Digest. Horovitz útskrifaðist frá Harvard College 2008. Áður en hann hóf nám við Harvard nam hann í eitt ár við Univeristy of St. Andrews, þar sem að hann lék með golfliði skólans. Árið 2007 skrifaði hann, leikstýrði og framleiddi heimildarmyndina ?The Caddies of St. Andrews.
Undanfarin ár hefur Oliver verið kylfusveinn fyrir Huey Lewis á „Dunhill Pro-Am Championship“. Oliver hefur sagt frá því að hann sjái mest eftir því lífinu að hafa gleymt að segja Huey frá Cheape´s Bunker á 2. holunni á Old Course árið 2010, sem varð til þess að Huey fékk tvöfaldan skolla á holuna.
Á kynningunni mun Oliver segja frá reynslu sinni sem kylfusveinn á „Old Course“. Hann mun deila með gestum bestu kylfusveinssögunum sínum og veita ráð um hvernig skuli leika golf við skoskar aðstæður og hvernig skal staðið að því að skipuleggja golfferð til Skotlands. Hann mun auk þess árita bækur og svara spurningum úr sal um allt sem viðkemur St. Andrews og golfmenningunni þar. Áður en kynningin hefst mun gestum gefast kostur úr því að skora á Oliver í pútt keppni og boðið verður uppá viskí smökkun.
Bókina er hægt að nálgast á Amazon og IBooks vefverslununum, í verslunum Eymundsson, auk þess sem bókin verður seld á staðnum. Verð: 3.500 kr.
Ítarefni:
Bókin hefur notið mikilla vinsælda og var um tíma í 21. sæti á „New York Times Best Seller List“. Auk þess hefur bókin fengið mikla umfjöllun vestan hafs, m.a. í Boston Globe (http://on.wsj.com/10kR1Kd ) , New York Post (http://bit.ly/YIJXTe ), Chicago Tribune (http://bit.ly/Y75k6V ) og í Parade Magazine þar sem hún var valinn bók vikunnar.
Oliver var einnig gestur í þættinum CBS this morning (http://www.cbsnews.com/video/watch/?id=50143149n. ) auk þess að taka þátt í innslagi fyrir Golfing World.
Nánari upplýsingar um Oliver Horovitz, bókina og umfjöllun um hana er að finna á vefsíðu hans, www.oliverhorovitz.com