Nesvellir loka fyrir sumarið og æfingasvæðið er opið

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagsmenn,

Nesvellir, inniaðstaða klúbbsins mun nú loka frá og með morgundeginum, 1. maí.  Æfingar barna- og unglinga munu þó halda þar áfram fram að skólalokum.

Æfingasvæði klúbbsins úti á golfvelli hefur verið opnað, bæði er boltavélin komin í gang og eins hafa verið sett flögg á púttflötina og æfingaflatirnar.  Þeirri nýjung hefur verið komið á að hægt er að greiða fyrir eina fötu við boltavélina sjálfa og munu „token“ nú heyra sögunni til.  Einnig er að sjálfsögðu hægt að nota boltakortin.

Við minnum svo á Hreinsunardaginn sem haldinn verður laugardaginn 10. maí og hvetjum við alla til að mæta.  Það verður nánar auglýst þegar nær dregur.