Skráning í gegnum Golfbox, Ecco o.fl.

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Það hefur verið haft samband við mig þar sem fólk hefur átt erfitt með að skrá sig í gegnum Golfbox.  Ástæðan er aðallega sú að það er einhver villa sem kemur upp þegar skráð er í gegnum vafrann „safari“ sem er aðallega í Iphone símum og Mac tölvum.  Ég er búinn að tala við GSÍ og það er unnið að lausnum.  Þangað til þarf að fara í gegnum annan vafra, t.d. Crome eða Edge og svo hefur í flestum tilfellum appið virkað líka.   Crome og Edge má finna í App store og kostar ekkert.

Hreinsunardagurinn er á morgun og okkur vantar fleiri hendur.  Ef þú mögulega hefur tök á að koma, og jafnvel þó það sé ekki allan tímann, að þá væri það ákaflega vel þegið.  Hægt er að skrá sig með því að smella hér.

Skráning i forkeppni ECCO bikarkeppninnar er hafin á Golfbox.  Undanfarin ár hafa færri komist að en vildu í þetta mót þannig að það er um að gera að skrá sig sem fyrst.

Rástímar á sunnudaginn.  Það þurfti að loka aðeins skráningum á rástíma á sunnudaginn en ég var að opna fyrir þá þannig að hægt er að skrá sig núna.

Sjáumst hress,

Haukur
Framkvæmdastjóri