Dagana 7.–30. apríl verður haldið opið golfhermamót á Nesvöllum í samstarfi við Rauða Ljónið.
Leikið verður á Hualalai Resort vellinum á Hawaii. Keppt er í punktakeppni með Trackman forgjöf, auk þess sem veitt eru verðlaun fyrir besta skor án forgjafar og nándarverðlaun á öllum fjórum par 3 holum vallarins.
Punktakeppni
1. sæti
- 10 körfu boltakort á æfingasvæði Nesklúbbsins
- 15.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljóninu
2. sæti
- 5 körfu boltakort á æfingasvæði Nesklúbbsins
- 7.500 kr. gjafabréf á Rauða Ljóninu
3. sæti
- 5 körfu boltakort á æfingasvæði Nesklúbbsins
- 5.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljóninu
Besta skor án forgjafar
- 10 körfu boltakort á æfingasvæði Nesklúbbsins
- 15.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljóninu
Nándarverðlaun
Veitt verða nándarverðlaun á öllum fjórum par 3 holum vallarins:
- 5.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljóninu á hverri holu
Keppnisskilmálar
- Leikið er með Trackman forgjöf
- Hámarksforgjöf er 28
- Leikmenn þurfa að hafa spilað að lágmarki fjóra hringi til forgjafar í Trackman
- Þátttökurétt hafa þeir sem hafa greitt fyrir leigu á golfhermi á Nesvöllum
- Karlar leika af teigum 55 og konur af teigum 49
- Stillingar: brautir „soft“, flatir „medium“ og pútt „auto-fixed“
- Hver þátttakandi getur spilað einu sinni í mótinu
- Hægt er að velja „mulligan“ ef um tæknilega villu í herminum er að ræða, en þá þarf að senda skriflega skýringu á nesvellir@nkgolf.is

