Það var heldur betur líf og fjör á Nesvellinum í dag þegar um 170 börn tóku hófu leik á fyrri keppnisdegi í GOLF14 mótinu. Keppt er í þremur aldursflokkum hjá bæði strákum og stúlkum.
Frábær skor litu dagsins ljós í öllum flokkum en umfram allt var það gleði og ánægja barnanna sem stóð upp úr eftir daginn.
Þórunn Emma McGinley, 12 ára stúlka úr golfklúbbnum Keili gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 9. braut vallarins. Sannarlega frábært afrek hjá þessari ungu og efnilegu stúlku.
Öll úrslit dagsins má sjá á Golfbox eða með því að smella hér
Á morgun, sunnudag verður svo síðari keppnisdagur mótsins þar sem allir flokkar spila 9 holur. Þar að auki fá allir keppendur möguleika á að spreyta sig í 9 holu púttmóti. Að móti loknu verður svo verðlaunaafhending og öllum börnum boðið upp á pylsu og djús.

