GOLF14 – frábærri helgi á Nesvellinum lokið

NesklúbburinnAlmennt

Stærsta og fjölmennasta barnagolfmót sem haldið hefur verið á Íslandi er nú nýlokið á Nesvellinum.  Völlurinn og veðurguðirnir skörtuðu sínu fegursta og voru bæði keppendur og þjálfarar himinánægðir með framkvæmd og gang mótisins.  Allir keppendur stóðu sig með miklum sóma og með samvinnu bæði foreldra og þjálfara allra barna gekk allt eins og í sögu. 166 börn úr klúbbum allstaðar að af landinu léku í þremur aldursflokkum í bæði drengja og stúlknaflokki.  Öllum krökkunum gafst kostur á að taka þátt í púttmóti eftir hring á sunnudeginum sem vakti mikla lukku á meðal keppenda og voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur öllum aldursflokkum.  Að móti loknu var svo öllum boðið upp á pylsu og djús og fóru öll börnin heim með bros á vör.

Helstu úrslit í höggleiknum má sjá hér neðar og öll úrslit mótsins í heild má svo sjá með því að smella hér.

13 – 14 ára drengir (27 holur):

  1. sæti: Kristófer Áki Aðalsteinsson, GA – 103 högg
  2. sæti: Ásgeir Páll Baldursson, GM – 106 högg
  3. sæti: Emil Darri Birgisson, GM – 106 högg

13 – 14 ára stúlkur (27 holur):

  1. sæti: Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK – 109 högg
  2. sæti: Emilía Sif Ingvarsdóttir, GO – 120 högg
  3. sæti: Sólveig Arnardóttir, GK – 125 högg

11 – 12 ára drengir (18 holur):

  1. sæti: Eiríkur Bogi Karlsson, GKG – 62 högg
  2. sæti: Ísak Hrafn Jónasson, GR – 62 högg
  3. sæti: Ólafur Bjarni Þórðarson, GSS – 69 högg

11 – 12 ára stúlkur (18 holur):

  1. sæti: Ásta Sigríður Egilsdóttir, GO – 87 högg
  2. sæti: Arna Dís Hallsdóttir, GKG – 92 högg
  3. sæti: Hekla Ólafsdóttir, GO – 92 högg

10 ára og yngri, drengir (18 holur):

  1. sæti: Jóhann Karl Ingvarsson, GO – 82 högg
  2. sæti: Andri Þór Guðmundsson, GKG – 85 högg
  3. sæti: Haraldur Breki Ólafsson, NK – 85 högg

10 ára og yngri stúlkur (18 holur):

  1. sæti: Saga Karitas Steinsdóttir, NK – 98 högg
  2. sæti: Hildur María Karlsdóttir, GO – 103 högg
  3. sæti: Edda Elmarsdóttir, GKG – 103 högg