Formannspistill

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Golfsumarið 2026 er á enda og því tímabært að þakka ykkur öllum fyrir ánægjulegt tímabil. Sumarið var heilt yfir mjög gott þrátt fyrir smá veður innkomu í júlí. Nesklúbburinn er einstakur klúbbur og það kemur ekki síst fram í þeirri samheldni og anda sem við sjáum hjá félagsmönnum dag eftir dag.

Völlurinn fer í vetrarham

Þegar þetta er skrifað er dagatalið að nálgast nóvember og því má fara að búast við frosti í kortunum. Þegar það gerist styttist í að lokað verði inn á sumarflatir og ekki verður lengur heimilt að slá af brautum og teigum. Á meðan völlurinn er enn opinn er afar mikilvægt að allir gangi mjög vel um hann því hann er sérlega viðkvæmur þessa dagana þegar frystir yfir á nóttunni. Við treystum á skilning og tillitsemi ykkar allra.

Ég hvet ykkur eindregið til þess að halda golfinu gangandi í vetur á Nesvöllum, inniaðstöðu klúbbsins á Austurströnd 5. Þar höfum við endurnýjað í TrackMan iO golfherma sem bíða ykkar auk æfingaflatarinnar fyrir pútt og vipp.  Allar upplýsingar um inniaðstöðuna og bókanir má sjá á heimasíðu klúbbsins.

Nesklúbburinn í stöðugri þróun og við viljum heyra í ykkur

Mikilvægur þáttur í þróunarvinnu klúbbsins er að leita reglulega til þeirra sem mestu máli skipta, ykkar félagsmanna. Stjórn NK hefur með nokkuð jöfnu millibili sent út skoðanakönnun til að fá skýrari mynd af því hvar við stöndum og hvert skal stefna. Slík könnun mun bráðlega berast til ykkar með tölvupósti og við biðjum ykkur innilega um að gefa ykkur nokkrar mínútur til að svara henni. Hún er stutt en skilaboðin sem við fáum til baka eru gífurlega dýrmæt. Þátttaka hvers einstaks félaga skiptir máli og við höfum notað fyrri kannanir sem grunn að þeirri þróun og  breytingum sem við höfum innleitt.

Þessi árstími er öllu jafna nokkuð annasamur hjá stjórn og starfsfólki.  Undirbúningur fyrir aðalfund sem er jú alltaf á endanum æðsta vald klúbbsins og því einnig góður vettvangur fyrir félagsmenn til að koma málefnum og skoðunum sínum á framfæri.  Eins er verið að gera upp liðið starfsár hjá öllum nefndum og stjórn og þá er fjárhagur félagsins gerður upp.  Við höldum vel utan um það sem stóð upp úr á árinu og birtum það í máli og myndum í árskýrslu sem birt er fyrir aðalfund sem er ekki síst mikilvægt til þess að halda vel utan um sögu klúbbsins.

Einnig sitjum við samráðsfundi með forsvarsfólki annarra golfklúbba, héraðssambandinu okkar, UMSK og svo á komandi formannafundi Golfsambands Ísland sem haldinn er um miðjan nóvember á Akureyri sem bæði ég sem formaður klúbbsins ásamt framkvæmdastjóra sitjum.  Þar kemur öll golfhreyfingin saman, ber saman bækur og leggur drög að framtíðarmótun golfhreyfingarinnar í heild sinni.  Það er mikilvægt að félagsmenn séu meðvitaðir um þessa umgjörð og skilji að hún setur starfsemi klúbbsins ákveðinn ramma, réttindi og skyldur sem okkur öllum ber að virða sem íþróttafélag og þannig hluti af stærri heild innan Golfsambandsins og þannig Íþróttasambands Íslands.

Nefndarstarf

Endurnýjun hefur átt sér stað í kvennanefnd klúbbsins og vil ég þakka fráfarandi nefnd fyrir frábært og óeigingjarnt starf. Jafnframt hefur nýskipuð barna- og unglinganefnd tekið til starfa. Ég vil bjóða alla einstaklinga í báðum nefndum sérstaklega velkomin til starfa, en þau gegna mikilvægu hlutverki í því öfluga starfi sem á sér stað í kvennagolfinu sem og barna- og unglingastarfi klúbbsins.

Samtal við bæjarstjórnina

Stjórn klúbbsins er þessa dagana að undirbúa formlegt samtal við bæjarstjórn Seltjarnarness varðandi framtíðarsýn Nesklúbbsins. Við byggjum miklar vonir til þessa samtals sem við teljum miklvægan þátt í framþróun golfklúbbsins okkar. Gott samstarf við sveitarfélagið er mikilvægt og við horfum til þess með bjartsýni.

Nánar verður fjallað um þetta allt og enn þá fleira á aðalfundinum sem boðað verður til innan skamms.

Þangað til óska ég ykkur alls góðs og hlakka til að sjá ykkur á Nesvöllum í vetur.

Með bestu kveðju,

Þorsteinn Guðjónsson
Formaður Nesklúbbsins