Aðalfundur 2026

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Stjórn Nesklúbbsins – Golfklúbbs Ness boðar hér með til aðalfundar vegna starfsársins 1. nóvember 2025 til 31. október 2026.  Aðalfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 24. nóvember 2026 í Hátíðarsal Gróttu á efri hæð íþróttahússins á Suðurströnd 8, Seltjarnarnesi og hefst kl. 19:30.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

Fundarsetning

  1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögð fram skýrsla formanns
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.  Reikningar bornir undir atkvæði.
  5. Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða*
  6. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
  7. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
  8. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðenda reikninga skv. 9. gr. þessara laga.
  9. Önnur mál.

Samkvæmt 2.mgr. 9.gr. laga klúbbsins ber að tilkynna framboð til stjórnar með aðalfundarboði á heimasíðu.  Í kjöri eru formaður til eins árs og þrír stjórnarmenn til tveggja ára. Kjörnefnd hafa borist tilkynningar um framboð til stjórnar Nesklúbbsins frá eftirtöldum félögum.

Til stjórnar til tveggja ára: Heimir Örn Herbertsson, Jóhann Karl Þórisson og Þórkatla Aðalsteinsdóttir hafa boðið sig fram til stjórnarsetu til tveggja ára.  Árni Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér til frekari stjórnarsetu.

Þá hefur Þorsteinn Guðjónsson, formaður, tilkynnt að hann sé í framboði til áframhaldandi formennsku næsta árið.

Önnur framboð hafa ekki borist og er framboðsfresti lokið.

Fundargögn, þ.m.t. ársskýrsla og -reikningar félagsins og kynning á frambjóðendum til stjórnar klúbbsins verða birt á heimasíðu klúbbsins við fyrsta tækifæri, eigi síðar en 23. nóvember n.k.  Fundurinn verður pappírslaus og er félagsmönnum bent á að kynna sér gögnin á heimasíðunni.

Seltjarnarnesi, 17. nóvember 2026

Stjórn Nesklúbbsins 

Lagabreytingar

*Samkvæmt 17. gr. Laga félagsins skal kynna framkomnar tillögur til lagabreytinga í aðalfundarboði.  Ellefu tillögur til lagabreytinga hafa borist innan settra tímamarka, þar af fimm frá stjórn klúbbsins og sex frá Birni B. Björnssyni.  Tillögurnar, sem verða bornar undir fundinn til afgreiðslu eru þessar og birtar í þeirri röð sem þær bárust.

 

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins haldinn 24. nóvember 2026.
Stjórn félagsins leggur til eftirfarandi breytingar á lögum félagsins:

Breytingartillaga 1:

Núverandi 1. gr. laganna er eftirfarandi:

Félagið heitir Golfklúbbur Ness – Nesklúbburinn, skammstafað NK.  Heimili þess og varnarþing er á Seltjarnarnesi.  Félagið er aðili að Ungmennasambandi Kjalarnesþings og Golfsambandi Íslands og því háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Tillaga um að ný málsgrein bætist við og verði 2.mgr. svohljóðandi:

Félagið starfar samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla.  Félagið hefur öðlast viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ og stjórn félagsins skal leggja sig fram um að fullnægja skyldum sem því fylgja.

Breytingartillaga 2:

Núverandi 3. gr. laganna er eftirfarandi:

Inngöngu í félagið fá umsækjendur að fenginni samþykkt félagsstjórnar.  Heimilt er að takmarka fjölda félagsmanna miðað við vallaraðstæður.  Um félagsaðild og önnur skyld mál skal farið að lögum GSÍ og ÍSÍ.

Stjórn félagsins skal ákvarða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks og æfinga sem félagið getur boðið hverju sinni.  Óski fleiri félagsaðildar en unnt er að verða við skal setja umsækjendur á biðlista. Stjórn félagsins skal setja og birta reglur um biðlistann.

Umsækjendur sem sótt hafa um aðild að félaginu og eru á biðlista, sbr. 2.mgr. þessarar greinar og ungmenni 17 ára og yngri geta fengið aukaaðild að félaginu.  Aukaaðild fylgir takmarkaður réttur til leiks á golfvelli félagsins samkvæmt reglum sem stjórnin setur.  Stjórnin skal ákveða hámarksfjölda aukafélaga miðað við þá aðstöðu sem er í boði á hverjum tíma.

Tillaga um að ný málsgrein bætist við og verði 2.mgr. svohljóðandi:

Lagt er til að núverandi ákvæði 3.gr. falli út og í staðinn komi ný 3.gr. svohljóðandi:

Félagsaðild er öllum frjáls. Félagsaðild tekur gildi þegar viðkomandi hefur verið skráður í félagatal félagsins og greitt þau félagsgjöld sem ákveðin eru samkvæmt lögum félagsins. Félagið skal halda félagatal og skrá yfir iðkendur í samræmi við lög og reglur ÍSÍ og GSÍ.

Stjórn ákveður, innan ramma laga félagsins, hvaða flokkar leikréttar og aðgang að golfvelli félagsins standa félagsmönnum til boða.  Heimilt er að takmarka fjölda þeirra sem njóta leikréttar með hliðsjón af afkastagetu þeirrar aðstöðu sem félagið hefur yfir að ráða.  Sé eftirspurn eftir leikrétti eða aðgengi meiri en aðstaðan sem félagið ræður yfir skal halda biðlista eftir slíkum réttindum samkvæmt fyrirfram ákveðnum, birtum og gegnsæjum reglum.  Takmörkun á leikrétti eða aðgangi að aðstöðu hefur ekki áhrif á félagsaðild viðkomandi eða almenn félagsréttindi hans samkvæmt lögum félagsins og lögum ÍSÍ.

Ákvæði til bráðabirgða: Fullgildir félagar í Nesklúbbnum 1. nóvember 2026 halda fullum leikrétti.

Breytingartillaga 3:

Núverandi 7.gr. laganna er eftirfarandi:

Félagar greiða árgjald fyrir hvert ár og er gjalddagi þess 1. febrúar.  Nýir félagar greiði inntökugjald, er þeir ganga í klúbbinn.  Greiði félagar ekki, eða gangi frá árgjaldi  sínu fyrir eða á gjalddaga, hefur stjórnin heimild til að svipta viðkomandi félagsréttindum.  Stjórn klúbbsins hefur heimild til að gera undanþágur um greiðslu árgjalds vegna sérlegra aðstæðna, að hennar mati.

Lagt er til að núverandi ákvæði 7.gr. falli út og í staðinn komi ný 7.gr. svohljóðandi:

Aðalfundur ákveður félagsgjöld og er gjalddagi þess 1. febrúar.  Heimilt er að hafa mismunandi gjaldflokka meðal annars eftir aldri og leikrétti. Nýir félagar greiði inntökugjöld er þeir ganga í klúbbinn.  Greiði félagar ekki, eða gangi frá árgjaldi sínu fyrir eða á gjalddaga hefur stjórnin heimild til að svipta viðkomandi félagsréttindum.  Stjórn klúbbsins hefur heimild til að gera undanþágur um greiðslu árgjalds vegna sérlegra aðstæðna, að hennar mati.

 Breytingartillaga 4:

Núverandi 14.gr. laganna er eftirfarandi:

  1. grein

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn í nóvember ár hvert.  Til aðalfundar skal boða með minnst 7 daga fyrirvara, á heimasíðu klúbbsins og og með tölvuskilaboðum til þeirra félagsmanna sem hafa tilkynnt netfang sitt. og telst hann lögmætur sé löglega til hans boðað án tillits til þess hve margir mæta.  Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafa skuldlausir félagar 18 ára og eldri.

Lagt er til að sá frestur sem boða skal aðalfundinn með verði 14 dagar í stað 7 daga skv. tilmælum ÍSÍ og greinin verði því svohljóðandi

  1. grein

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn í nóvember ár hvert.  Til aðalfundar skal boða með minnst 14 daga fyrirvara, á heimasíðu klúbbsins og og með tölvuskilaboðum til þeirra félagsmanna sem hafa tilkynnt netfang sitt. og telst hann lögmætur sé löglega til hans boðað án tillits til þess hve margir mæta.  Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafa skuldlausir félagar 18 ára og eldri.

 Breytingartillaga 5:

Núverandi 22.gr. laganna er eftirfarandi:

Lög þessi öðlast gildi við samþykki á aðalfundi.

Lagt er til að núverandi ákvæði 22.gr. falli út og í staðinn komi ný 22.gr. svohljóðandi:

Lög þessi og síðari breytingar á þeim öðlast gildi þegar stjórn UMSK og framkvæmdastjórn ÍSÍ hafa staðfest þau, eftir samþykkt á aðalfundi félagsins


Greinargerð stjórnar með tillögum að lagabreytingum

Seltjarnarnesi, 21. september 2026

Stjórn Nesklúbbsins leggur til breytingar á lögum félagsins í þeim tilgangi að samræma þau gildandi lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar og skýra betur fyrirkomulag félagsaðildar og leikréttar.

Breyting á 1. grein er lögð til í kjölfar þess að Nesklúbbnum hefur öðlast stöðu félags til viðurkenningar sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Með breytingunni eru þessar skuldbindingar festar í lög félagsins.

Breyting á 1. grein er lögð til í kjölfar þess að golfklúbbum landsins hefur nú verið ráðlagt að skrá félagið á almannaheillafélagaskrá, ekki síst í skattalegum tilgangi sem mun þannig nýtast félaginu til góðs sem og styrktaraðilum félagsins.  Með breytingunni er skuldbindingum sem slíkri skráningu fylgir fest í lög.

Breyting á 3. grein tekur mið af úrskurði er birtur var af Íþróttasambandi Íslands þann 11. maí síðastliðinn um reglur um félagsaðild að íþróttafélögum. Samkvæmt henni skal félagsaðild vera öllum frjáls en heimilt er að takmarka leikrétt og aðgang að íþróttaaðstöðu með hliðsjón af afkastagetu hennar. Með breytingunni er því gerður skýr greinarmunur á félagsaðild annars vegar og leikrétti hins vegar. Jafnframt er sérstaklega tryggt að núverandi fullgildir félagsmenn haldi óbreyttum leikrétti en að stjórn félagsins sé heimilt að takmarka hann að öðru leiti.  Stjórn vill taka fram að það er mikilvægt að félagsmenn átti sig á að breytingin þýðir ekki að öllum verði veittur leikréttur á Nesvellinum heldur snýst hún um að aðgreina félagsaðild frá aðgangi að vellinum.

Breyting á 7. grein er til samræmis við breytt fyrirkomulag félagsaðildar og heimilar mismunandi gjaldflokka, meðal annars eftir aldri og leikrétti.

Breyting á 14. grein er lögð til í þeim tilgangi að samræma lög félagsins þeim lögum og reglum sem ÍSÍ setur aðildarfélögum innan sambandsins, sbr. grein 7.7.d í lögum ÍSÍ.

Breyting á 22. grein skýrir gildistöku lagabreytinga og tryggir að lög félagsins og síðari breytingar á þeim hljóti tilskilda staðfestingu UMSK og ÍSÍ.

Með þessum breytingum vill stjórn tryggja að lög Nesklúbbsins séu skýr, í samræmi við reglur íþróttahreyfingarinnar og taki jafnframt mið af þeim takmörkunum sem aðstaða félagsins setur.

 

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins haldinn 24. nóvember 2026.
Björn Brynjólfur Björnsson leggur til eftirfarandi breytingar á lögum félagsins:

Breytingartillaga 1:

Núverandi 17. gr. laganna er eftirfarandi:

Lögum þessum má breyta á aðalfundi og þarf 2/3 hluta atkvæða til þess að lagabreyting nái fram aðganga. Tillaga að lagabreytingum skal hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en 1. október hverju sinni og skal vera skrifleg. Tillögur til lagabreytinga skulu kynntar í aðalfundarboði.

Tillaga um að núverandi ákvæði verði fellt út og í staðinn komi eftirfarandi ný 17.gr.:

Lögum þessum má breyta á aðalfundi og þarf meirihluta hluta atkvæða til þess að lagabreyting nái fram að ganga. Tillaga að lagabreytingum skal hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund hverju sinni og skal vera skrifleg. Tillögur til lagabreytinga skulu kynntar félagsmönnum þegar þær berast.

Breytingartillaga 2:

Núverandi 14. gr. er eftirfarandi:

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn í nóvember ár hvert. Til aðalfundar skal boða með minnst 7 daga fyrirvara, á heimasíðu klúbbsins og  með tölvuskilaboðum til þeirra félagsmanna sem hafa tilkynnt netfang sitt og telst hann lögmætur sé löglega til hans boðað án tillits til þess hve margir  mæta.  Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafa skuldlausir félagar 18 ára og eldri.

Tillaga um að 1.mgr. ákvæðisins verð svohljóðandi:

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn í nóvember ár hvert. Til aðalfundar skal boða með minnst 14 daga fyrirvara, á heimasíðu klúbbsins og með tölvuskilaboðum til þeirra félagsmanna sem hafa tilkynnt netfang sitt….

Breytingatillaga 3:          

Núverandi 1.mgr. 9.gr. er eftirfarandi:

Kjörgengir til stjórnarstarfa eru lögráða félagsmenn. Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Sex stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn, þrír í hvert sinn, en formann félagsins skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn. Tveir skoðunarmenn reikninga eru kosnir saman til eins árs í senn. Formann, stjórnarmenn og skoðunarmenn má endurkjósa. Kosning skal vera skrifleg komi fram ósk þar að lútandi.

Tillaga um að ákvæðinu verð breytt eftirfarandi:

Kjörgengir til stjórnarstarfa eru lögráða félagsmenn. Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Sex stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn, tveir í hvert sinn, einn karl og ein kona. Formann félagsins skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn. Hafi tveir síðustu formenn verið karlmenn skal sá þriðji vera kona og vice versa. Formann má endurkjósa fjórum sinnum og stjórnarmenn tvisvar. Tveir skoðunarmenn reikninga eru kosnir saman til eins árs í senn. Kosning skal vera skrifleg.

Greinin verði að öðru leiti óbreytt.

Breytingatillaga 4:

Núverandi 2. mgr. 3.gr. er eftirfarandi:

Stjórn félagsins skal ákvarða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks og æfinga sem félagið getur boðið hverju sinni.

Tillaga um að ákvæðinu verði breytt eftirfarandi:-

Aðalfundur skal ákvarða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks og æfinga sem félagið getur boðið hverju sinni.

Breytingartillaga 5:

Núverandi 15.gr. er eftirfarandi:

Dagskrá reglulegs aðalfundar skal vera sem hér segir:

Fundarsetning

  1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögð fram skýrsla formanns
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.  Reikningar bornir undir atkvæði.
  5. Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.
  6. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
  7. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
  8. Kosning formanns, stjórnarmanna  og skoðenda reikninga skv. 9. gr. þessara laga.
  9. Önnur mál.

Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum allra mála, nema þar sem annað er tekið fram í lögum þessum.

Tillaga um að ákvæðinu verði breytt eftirfarandi:-

Skotið verði inní dagskrá nýjum lið nr. 9 svohljóðandi:

9 Tillögur að breytingum á vellinum.

Annað verð óbreytt.

Breytingartillaga 6:

Núverandi 19.gr. er svohljóðandi:

Stjórnin fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda og ber að gæta hagsmuna þess í öllum greinum.  Hún hefur umráð yfir eignum félagsins og boðar til funda.  Ákvörðun stjórnar um málefni félagsins er því aðeins gild að meirihluti stjórnarmanna sé henni fylgjandi.

Lagt er til að aftast í greinina bætist við ný setning:

Allar fyrirhugaðar breytingar á vellinum ber stjórn að kynna félagsmönnum á aðal- eða félagsfundi áður en í þær er ráðist.

Greinin verði að öðru leiti óbreytt.

 

Framangreindar tillögur bárust félagsstjórn með tölvupósti hinn 30. september 2026 og eru lagðar fram í nafni félagsmanns, Björns Brynjólfs Björnssonar.  Framsetningu hefur verið breytt lítillega til samræmis við aðrar lagabreytingartillögur, en ekki efnislega og verða lagðar fyrir aðalfund til afgreiðslu.

  1. nóvember 2026

Árni Vilhjálmsson, ritari stjórnar

Bréf Björns B. Björssonar með tillögum að lagabreytingum:

Ágætu félagar í Nesklúbbnum.

Ég sendi inn 6 tillögur að breytingum á lögum klúbbsins sem við tökum afstöðu til á aðalfundi nú í haust og vil með þessu bréfi gera svolitla grein fyrir þeim.

Megin markmið þessara tillagna er að auka virkni almennra félaga í starfi klúbbsins og þátttöku í ákvörðunum og auka hlut kvenna í stjórn klúbbsins.

Ég held að það sé okkur öllum til hagsbóta að fá fram sem flest sjónarmið og hugmyndir um völlinn okkar og að aukin þátttaka félaga í stjórn klúbbsins efli félagsanda og samheldni.

Aukinn hlutur kvenna í stjórn klúbbsins held ég að verði okkur öllum til góðs og í takti við öflugt starf þeirra á vettvangi klúbbsins.

Þetta eru markmiðin.

Lagabreytingarnar sem ætlaðar eru til að ná þessum markmiðum eru að gera það auðveldara að breyta lögum klúbbsins með því að stytta frestinn til að skila tillögum og að einfaldur meirihluti ráði en ekki tveir þriðju fundarmanna eins og nú er.

Þá er lagt til að á dagskrá aðalfundar verði nýr liður sem heitir “Tillögur að breytingum á vellinum” þar sem stjórnin og allir félagsmenn geta lagt fram tillögur að því sem gera skuli, rætt þær tillögur og tekið afstöðu til þeirra. Ef fram koma slíkar tillögur á öðrum árstímum verði að leggja þær fyrir félagsfund. Þannig fáum við öll tækifæri til að skoða breytingar sem fyrirhugaðar eru á vellinum áður en ráðist er í þær.

Einnig er lagt til að aðalfundur ræði og ráði fjölda félagsmanna en ekki stjórn klúbbsins. Það er eðlilegt að við höfum öll aðkomu að þessari ákvörðun og núverandi fyrirkomulag skapar freistnivanda fyrir stjórnina.

Loks eru tillögur um að setja tímamörkmörk á lengd stjórnarsetu til að fleiri taki þátt í starfinu. Stjórnarmenn verði 6 eins og áður, tveir kosnir á hverju ári, til tveggja ára og megi bjóða sig fram einu sinni enn, samtals í 4 ár. Annar þeirra verði karl en hinn kona.

Formaður verði kosinn til eins árs eins og nú er og megi kjósa sama mann fjórum sinnum. Þegar tveir karlmenn í röð hafa gegnt embættinu skal næst kjósa konu. Það sama gildir ef konur hafa verið formenn tvisvar þá skal næst kjósa karl.

Ég hef þá trú að meiri aðkoma kvenna að stjórn klúbbsins verði okkur til framdráttar og ekki nógu gott að kona hafi aldrei verið formaður klúbbsins.

Ég vona að þið séuð sammála mér um að þessar tillögur séu skref í rétta átt og eins og hér er lagt til verður eftirleiðis auðveldara að breyta lögum klúbbsins ef þar er eitthvað sem við viljum breyta og bæta til að gera okkar frábæra klúbb enn betri.

Bestu kveðjur,
Björn B Björnsson