Það gleður okkur að kynna að við höfum tekið í notkun nýtt bókunarkerfi fyrir golfhermana okkar á Nesvöllum. Bókanir fara nú fram í gegnum Abler, sem er sama kerfi og notað er við innheimtu félagsgjalda og ætti því að vera flestum félögum kunnugt.
Nýja bókunarkerfið gerir félögum einfaldara og þægilegra að bóka tíma á netinu. Áfram verður þó hægt að bóka tíma símleiðis á opnunartíma Nesvalla í síma 561-1910.
Greiða þarf alla staka tíma fyrirfram
Samhliða innleiðingu nýja bókunarkerfisins tekur gildi sú breyting að greiða þarf fyrir alla staka tíma fyrirfram, hvort sem bókað er á netinu eða símleiðis.
Sé bókun gerð símleiðis fær viðskiptavinur sendan greiðsluhlekk í tölvupósti og hefur 30 mínútur til að ganga frá greiðslu. Berist greiðsla ekki innan þess tíma fellur bókunin sjálfkrafa niður og tíminn verður aftur laus til bókunar.
Þegar um fasta tíma er að ræða verður áfram hægt að semja um annað greiðslufyrirkomulag. Til að bóka fasta tíma þarf að senda tölvupóst á nesvellir@nkgolf.is.
Sjálfvirkur félagsmannaafsláttur
Félagsmenn Nesklúbbsins fá 20% afslátt af bókunum í golfhermunum. Afslátturinn virkjast sjálfkrafa þegar félagsmenn skrá sig inn á Abler-aðganginn sinn og birtist í yfirliti bókunarinnar áður en gengið er frá greiðslu.
Inneignin verður rafræn
Á hverju ári fá allir klúbbfélagar 26 ára og eldri 10.000 kr. inneign til nýtingar í golfhermunum á Nesvöllum.
Með tilkomu Abler-kerfisins verður inneignin alfarið rafræn og þurfa félagsmenn framvegis að bóka tíma sjálfir á boka.nkgolf.is til að nýta hana.
Til að nýta inneignina slá félagsmenn inn kennitöluna sína í reitinn „Afsláttur eða gjafakort“ í bókunarferlinu og ýta á „Nota“.
Svona bókar þú tíma og nýtir inneignina á netinu:

Gömul klippikort
Þar sem nú þarf að greiða fyrir allar stakar bókanir á netinu þurfa þeir sem eiga klippikort og vilja nýta þau að bóka tíma símleiðis í síma 561-1910. Þeir sem vilja áfram geta bókað tíma rafrænt með klippikorti geta haft samband við okkur á nesvellir@nkgolf.is og við aðstoðum þá við að koma því fyrirkomulagi á.

