Íslandsmót golfklúbba fór fram um liðna helgina. Mótin er eins og áður hefur komið fram hér á síðunni keppni á milli golfklúbba landsins þar sem að liðin eru skipuð 8 kylfingum frá hverjum klúbbi. Lið Nesklúbbsins í kvennaflokki lék í 1. deild á Leirdalsvelli í Garðabæ og höfnuðu þær í 6. sæti. Í karlaflokki lék lið Nesklúbbsins á Garðavelli á Akranesi og höfnuðu þeir í 4. sæti. Góður árangur hjá báðum liðum og óskar Nesklúbburinn þeim til hamingju með árangurinn. Liðin voru þannig skipuð:
A-sveit kvenna:
Áslaug Einarsdóttir
Erla Pétursdóttir
Helga Kristín Gunnlaugsdóttir
Karlotta Einarsdóttir
Matthildur María Rafnsdóttir
Oddný Rósa Halldórsdóttir
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir
Þuríður Halldórsdóttir
Liðsstjóri: Stefán Örn Stefánsson
A-sveit karla:
Dagur Jónasson
Guðmundur Örn Árnason
Kjartan Óskar Guðmundsson
Kristinn Karl Jónsson
Nökkvi Gunnarsson
Oddur Óli Jónasson
Rúnar Geir Gunnarsson
Steinn Baugur Gunnarsson
Liðsstjóri: Gunnlaugur Jóhannsson