Íslandsmót golfklúbba um helgina – Nesklúbburinn er með

Nesklúbburinn

Íslandsmót golfklúbba 2016 fer fram nú um helgina.  Keppnin sem áður hét Sveitakeppni GSÍ er keppni á milli allra golfklúbba, skipt upp eftir deildum þar sem lið hvers klúbbs er skipað 8 kylfingum.  Þessa helgina er keppt á milli A-sveita klúbbanna og tekur Nesklúbburinn að sjálfsögðu þátt.  Kvennasveitin keppir í 1. deild á Leirdalsvelli í Garðabæ og karlasveitin í 2. deild á Garðavelli á Akranesi.  Allar upplýsingar nánari upplýsingar um fyrirkomulag og úrslit má nálgast á golf.is

Liðsskipan A-sveitar kvenna:

Áslaug Einarsdóttir
Erla Pétursdóttir
Helga Kristín Gunnlaugsdóttir
Karlotta Einarsdóttir
Matthildur María Rafnsdóttir
Oddný Rósa Halldórsdóttir
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir
Þuríður Halldórsdóttir

Liðsstjóri: Stefán Örn Stefánsson

Liðsskipan A-sveitar karla:

Dagur Jónasson
Guðmundur Örn Árnason
Kjartan Óskar Guðmundsson
Kristinn Karl Jónsson 
Nökkvi Gunnarsson
Oddur Óli Jónasson
Rúnar Geir Gunnarsson
Steinn Baugur Gunnarsson

Liðsstjóri: Gunnlaugur Jóhannsson