Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagsmenn,

Eins og áður hefur komið fram er fyrirhugað að halda aðalfund Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins, vegna síðasta starfsárs, fimmtudaginn 27. nóvember 2025.  Á aðalfundi verða kjörnir þrír stjórnarmenn til tveggja ára, auk formanns til eins árs.  Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram til þessara starfa tilkynni framboð sitt til eins neðangreindra kjörnefndarmanna eigi síðar en 13. nóvember næstkomandi. Boðað verður til fundarins með minnst viku fyrirvara og ber að kynna framboð til stjórnar í aðalfundarboði.  Berist ekki næg framboð skal kjörnefnd hlutast til um að afla nauðsynlegs fjölda framboða.

Í kjörnefnd eiga sæti:

Árni Vilhjálmsson (arni@logos.is)
Jóhann Karl Þórisson (johann.karl@lrh.is)
Þórkatla Aðalsteinsdóttir (thorkatla@lifogsal.is)

Stjórnin