Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins verður haldinn í golfskála félagsins miðvikudaginn 29. nóvember nk. kl. 19.30.
Dagskrá:
- Fundarsetning
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Lögð fram skýrsla formanns
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.
- Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
- Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
- Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðenda reikninga skv. 9. gr. laga.
- Önnur mál.
Lagabreytingar:
Fyrir liggur tillaga stjórnar klúbbsins um breytingu á 9. grein laga félagsins. Tillagan liggur til kynningar á heimasíðu klúbbsins: nkgolf.is og á skrifstofu framkvæmdastjóra í golfskálanum.
Alls bárust fjögur framboð til stjórnar og eitt til formanns. Framboðsfrestur til stjórnar var skv. 9. grein laga til miðvikudagsins 15. nóvember.
Framboð til stjórnar: Kristinn Ólafsson
Til stjórnar:
Áslaug Einarsdóttir
Guðrún Valdimarsdóttir
Jóhann Karl Þórisson
Þuríður Halldórsdóttir