Aðalfundur Nesklúbbsins á morgun

Nesklúbburinn

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins verður haldinn í golfskálanum á morgun, laugardaginn 24. nóvember kl. 15.00

Dagskrá:

  1. Fundarsetning
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Lögð fram skýrsla formanns
  4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.  Reikningar bornir undir atkvæði.
  6. Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.
  7. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
  8. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
  9. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna reikninga skv. 9. gr. laga.
  10. Önnur mál.