Áttu inneign á Nesvöllum?

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Þó það líti kannski ekki þannig út þá styttist óðfluga í sumarið – og aðeins rúmur mánuður þar til Nesvellir, inniaðstaðan okkar, fara í sumarfrí.

Við hvetjum ykkur eindregið til að nýta aðstöðuna á meðan og koma ykkur í leikform fyrir komandi tímabil.

Minnt er á að allir skuldlausir félagsmenn, 26 ára og eldri, eiga 10.000 króna inneign í golfhermana.

Tímabókanir fara fram á boka.nkgolf.is eða í síma 561-1910.

Til að nýta inneignina þarf einfaldlega að láta starfsmann Nesvalla vita og kvitta undir.

Opnunartíma Nesvalla má finna hér.