Bændaglíman 2018

Nesklúbburinn

Bændaglíma Nesklúbbsins verður haldin laugardaginn 29. september.  Bændaglíman sem er svo sannarlega mót á léttu nótunum og til gamans gert er jafnframt síðasta formlega mót sumarsins.  Því eru allir félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja tímabilið með stæl.

Bændur í ár verða þær Þyrí Valdimarsdóttir og Áslaug Einarsdóttir sem ættu að vera flestum ef ekki öllum félagsmönnum kunnar.

Dagskrá:

Mæting kl. 12.00

Þá verða bændur búnir að skipta þátttakendum í tvö lið með aðstoð mótsstjórnar.  Fjórir verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði) Texas-scramble holukeppni með fullri leikforgjöf.

Klukkan 12.30 munu bændur bjóða upp á létta hressingu og hvetja sín lið til dáða og munum við svo hefja leik kl. 12.45.  Gengið er út frá því að spila 18 holur nema veður muni gefa sérstakt tilefni til annars.  

Af gömlum sið Nesklúbbsins mun liðið sem tapar bregða sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið.

Þátttökugjald aðeins kr. 4.500 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur

Matseðill:

Hlaðborð með Lambaprime, kjúklingi og öllu tilheyrandi

Skráning fer nú fram á golf.is og lýkur fimmtudaginn 27. september. ATH. Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks.