Bændaglíman verður á laugardaginn

Nesklúbburinn

Bændaglíma Nesklúbbsins verður haldin næstkomandi laugardag.  Það er flott veðurspá og hvetjum við alla til að mæta í þetta lokamót klúbbsins þetta árið.

Bændur þau Oddný Rósa og Stefán Örn sem allir klúbbfélagar þekkja.

Skipt verður í tvö lið og verða leiknar 18 holur, fjögurra manna texas scramble fyrirkomulag. 

Að móti loknu ætla svo Höddi og Mario ætla að bjóða upp á Mexikóskt hlaðborð og mun tapliðið að sjálfsögðu sjá um að þjónusta sigurliðið eins og lög gera ráð fyrir.

Mætum öll með góða skapið því þetta verður allt á léttu nótunum og verður einfaldlega bara gaman – skráning og nánari upplýsingar á golf.is.  ATH: skráningu lýkur á morgun kl. 13.00 og verður ekki hægt að taka við skráningu eftir það.