Dagbjartur sigraði Einvígið á Nesinu

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í dag.  Þetta var í 28. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni, nú Umhyggju, félags sem vinnur með hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi.

Sigurvegari mótsins varð að lokum Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur eftir að hann sigraði Kjartan Óskar Guðmundsson á 9. braut.

Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins.  Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þau Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Jóhann Möller frá ARION BANKA, sem afhentu Chien Tai, stjórnarmeðlim Umhyggju ávísun að upphæð kr. 1.000.000.-

Úrslit í Einvíginu 2024 urðu eftirfarandi:

  1. sæti: Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
  2. sæti: Kjartan Óskar Guðmundsson, NK
  3. sæti: Aron Emil Gunnarsson, GOS
  4. sæti: Logi Sigurðsson, GS
  5. sæti: Aron Snær Júlíusson, GKG
  6. sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
  7. sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
  8. sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
  9. sæti: Karlotta Einarsdóttir, NK
  10. sæti: Böðvar Bragi Pálsson, GR