ECCO mótið í dag – úrslit

Nesklúbburinn

ECCO forkeppnin fór fram á Nesvellinum í dag.  ECCO mótið er innanfélagsmót og er eins og venjulega sjálfstætt mót en um leið forkeppni fyrir bæði bikarkeppni klúbbsins og Klúbbmeistarann í holukeppni. Í bikarkeppninni komast áfram 32 efstu í höggleik með forgjöf og fyrir klúbbmeistarann í holukeppni komast 16 efstu áfram í höggleik án forgjafar úr mótinu í dag.

Það voru 104 kylfingar skráðir til leiks í mótinu og léku veðurguðirnir hvern sinn fingur framan af morgni, hitastigið reyndar ekkert sérstaklega hátt en hægviðri og sól. Þegar líða tók á daginn dró þó fyrir sólu um leið og það bætti töluvert í vindinn sem gerði kylfingum nokkuð erfitt fyrir.  Sigríður Björk Guðmundsdóttir sigraði í keppni með forgjöf en hún lék á 88 höggum brúttó eða 67 höggum nettó.  Sigurvegari í höggleik án forgjafar var Rúnar Geir Gunnarsson sem kom inn á 71 höggi eða einu höggi undir pari vallarins. 

Helstu úrslit í mótinu urðu annars eftirfarandi:

Höggleikur án forgjafar:

1. sæti – Rúnar Geir Gunnarsson, 71 högg
2. sæti – Vilhjálmur Árni Ingibergsson, 72 högg
3. sæti – Nökkvi Gunnarsson, 72 högg

Höggleikur með forgjöf:

1. sæti – Sigríður Björk Guðmundsdóttir, 67 högg
2. sæti – Friðþjófur Jóhannesson, 67, högg
3. sæti – Þyrí Valdimarsdóttir, 68 högg högg

Nándarverðlaun:

2./11. braut – Sighvatur Bjarnason, 1,68 metra frá holu
5./14. braut – Valur Kristjánsson, 2,70 metrar frá holu