ECCO mótið í dag – úrslit

Nesklúbburinn

Fyrsta mót sumarsins, ECCO forkeppnin fór fram á Nesvellinum í dag.  ECCO mótið er innanfélagsmót og er eins og venjulega sjálfstætt mót en um leið forkeppni fyrir bæði bikarkeppni klúbbsins og Klúbbmeistarann í holukeppni. Í bikarkeppninni komast áfram 32 efstu í höggleik með forgjöf og fyrir klúbbmeistarann í holukeppni komast 16 efstu áfram í höggleik án forgjafar úr mótinu í dag.

Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur framan af morgni og buðu uppá hæviðri og sól.  Þegar líða tók á daginn dró þó fyrir um leið og það bætti töluvert í vindinn.  Kylfingur mótsins var Guðmundur Örn Árnason sem gerði sér lítið fyrir og sigraði í mótinu bæði með og án forgjafar. Guðmundur lék misfagurt en gott golf á hringnum þar sem meðal annars einn örn leit dagsins ljós.  Helstu úrslit í mótinu urðu annars eftirfarandi:

Höggleikur án forgjafar:

1. sæti – Guðmundur Örn Árnason, 68 högg
2. sæti – Oddur Óli Jónasson, 69 högg
3. sæti – Nökkvi Gunnarsson, 70 högg

Höggleikur með forgjöf:

1. sæti – Guðmundur Örn Árnason, 67 högg
2. sæti – Kristján Björn Haraldsson, 67 högg
3. sæti – Hinrik Þráinsson, 68 högg

Nándarverðlaun:

2./11. braut – Einar Þór Gunnlaugsson, 2,70 metrar frá holu
5./14. braut – Felix Ragnarsson, 1,49 metrar frá holu