Einnarkylfukeppni NK kvenna 11. júní

Nesklúbburinn

Þriðjudaginn 11. júní verður Einnarkylfukeppni NK kvenna haldin þar sem leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter. Stórskemmtilegt mót fyrir allar konur sem eru meðlimir í Nesklúbbnum þar sem dagskráin er eftirfarandi: 

Mæting er kl.17:30  

Ræst verður út  á öllum teigum kl.18:00 og spilaðar 9 holur.

Skráning er hafin á golf.is og lýkur á miðnætti mánudaginn  10. júní.  Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins milli 9-16 í síma 561-1930.  Athugið að dregið verður í holl.

Að móti loknu verður verðlunafhending og kvöldverður í golfskálanum.

Verðlaun eru fyrir 1. – 3. sæti, nándarverðlaun á báðum par 3 brautum og lengsta upphafshögg á fyrstu braut.

Þátttökugjald í mót, gleði  & kvöldverð er kr. 4.000.-

Hlökkum til að sjá ykkur,
Bryndís, Elsa og Fjóla