Það verður sannkallað stórskotalið margra af bestu kylfingum Íslands þegar hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, EINVÍGIÐ Á NESINU, verður haldið mánudaginn 4. ágúst, á Frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við ARION BANKA og er þetta í tuttugasta og níunda skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og leika þeir að þessu sinni í þágu Minningarsjóðs Bryndísar Klöru (smella hér).
Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00. Fyrstu tvær holurnar verða leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hið hefðbundna „shoot-out“, eða útsláttarskeppni, þar sem þau, sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut, falla úr leik.
Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með nokkrum fremstu kylfingum þjóðarinnar leika í þágu góðs málefnis.
Arion Banki, styrktaraðili Einvígsins á Nesinu, veitir í mótslok forsvarsaðila Minningarsjóðs Bryndísar Klöru ávísun upp á eina milljón króna.
Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2025 eru:
Aron Snær Júlíusson, GKG
Axel Bóasson, GK
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Heiðar Steinn Gíslason, NK
Haraldur Franklín Magnús, GR
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GKG
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR