Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 16. skipti á Nesvellinum mánudaginn 6. ágúst nk. Í ár mun DHL styrkja Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna, um eina milljón króna.
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.
Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks. Í fyrsta skipti munu feðgini mætast í Einvíginu en meðal þáttakenda er Björgvin Sigurbergsson úr GK og dóttir hans Guðrún Brá, Íslandsmeistari unglinga. Björgvin hefur sigrað Einvígið tvisvar sinnum en Guðrún Brá tekur þátt í fyrsta skipti.
DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða. Í ár er það Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna, sem fær eina milljón króna frá DHL. Markmið Neistans er m.a. að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartasjúkdómum barna og hjartagalla, meðferð þeirra, réttindi fjölskyldunnar og mannlega þættinum, t.d. á upplýsingavef sínum, Hjartagáttinni. Neistinn heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði Neistans, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega. Sjá nánar á www.neistinn.is
Þátttakendur 2012
Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | Atvinnukylfingur |
Björgvin Sigurbergsson | GK | Margfaldur Íslandsmeistari og Klúbbmeistari GK |
Guðjón Henning Hilmarsson | GKG | Klúbbmeistari GKG |
Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | Íslandsmeistari unglinga |
Hlynur Geir Hjartarson | GOS | Klúbbmeistari GOS |
Nökkvi Gunnarsson | NK | Shoot-out meistari 2011 |
Valdís Þóra Jónsdóttir | GL | Íslandsmeistari kvenna 2012 |
Þórður Rafn Gissurarson | GR | Atvinnukylfingur |
Örn Ævar Hjartarson | GS | klúbbmeistari GS |
Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu. Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:
Arnór Ingi Finnbjörnsson | GR | Sigurvegari Opna Þjóðhátíðardagsmótsins |
Rósant Birgisson | NK | Sigurvegari Opna Hótel Sögu mótsins |
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
Nánari upplýsingar veita:
Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Nesklúbbsins, S: 860-1358
Atli Freyr Einarsson, framkvæmdastjóri DHL, S:860-1353