Einvígið á Nesinu – Shoot out á mánudaginn

Nesklúbburinn

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 16. skipti á Nesvellinum mánudaginn 6. ágúst nk.  Í ár mun DHL styrkja Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna, um eina milljón króna.

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið  (shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks.  Í fyrsta skipti munu feðgini mætast í Einvíginu en meðal þáttakenda er Björgvin Sigurbergsson úr GK og dóttir hans Guðrún Brá, Íslandsmeistari unglinga. Björgvin hefur sigrað Einvígið tvisvar sinnum en Guðrún Brá tekur þátt í fyrsta skipti.

DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða.  Í ár er það Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna, sem fær eina milljón króna frá DHL. Markmið Neistans er m.a. að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartasjúkdómum barna og hjartagalla, meðferð þeirra, réttindi fjölskyldunnar og mannlega þættinum, t.d. á upplýsingavef sínum, Hjartagáttinni. Neistinn heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði Neistans, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega. Sjá nánar á www.neistinn.is

Þátttakendur 2012

Birgir Leifur Hafþórsson GKG Atvinnukylfingur
Björgvin Sigurbergsson GK Margfaldur Íslandsmeistari og Klúbbmeistari GK
Guðjón Henning Hilmarsson GKG Klúbbmeistari GKG
Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK Íslandsmeistari unglinga
Hlynur Geir Hjartarson GOS Klúbbmeistari GOS
Nökkvi Gunnarsson NK Shoot-out meistari 2011
Valdís Þóra Jónsdóttir GL Íslandsmeistari kvenna 2012
Þórður Rafn Gissurarson GR Atvinnukylfingur
Örn Ævar Hjartarson GS klúbbmeistari GS

Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu.  Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:

Arnór Ingi Finnbjörnsson GR Sigurvegari Opna Þjóðhátíðardagsmótsins
Rósant Birgisson NK Sigurvegari Opna Hótel Sögu mótsins

Sigurvegarar frá upphafi

1997    Björgvin Þorsteinsson
1998    Ólöf María Jónsdóttir
1999    Vilhjálmur Ingibergsson
2000    Kristinn Árnason
2001    Björgvin Sigurbergsson
2002    Ólafur Már Sigurðsson
2003    Ragnhildur Sigurðardóttir
2004    Magnús Lárusson
2005    Magnús Lárusson
2006    Magnús Lárusson
2007    Sigurpáll Geir Sveinsson
2008    Heiðar Davíð Bragason
2009    Björgvin Sigurbergsson
2010    Birgir Leifur Hafþórsson
2011    Nökkvi Gunnarsson

Nánari upplýsingar veita:

Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Nesklúbbsins, S: 860-1358
Atli Freyr Einarsson, framkvæmdastjóri DHL, S:860-1353