Ertu búin/n að skrá þig í Jónsmessuna????

Nesklúbburinn

Hið bráðskemmtilega Jónsmessumót verður haldið á morgun laugardaginn 25. júní.  Í þessu móti er það hvorki getan né metnaðurinn sem ræður ríkjum heldur er það gleðin og góða skapið því þetta er bara gaman. Ræst verður út af öllum teigum kl. 18.00 og verður happy-hour í veitingasölunni frá klukkan 16.30.

Leikið verður eftir texas-scramble fyrirkomulagi á léttu nótunum þar sem margt verður brallað, m.a. afbrigðilegar holustaðsetningar, nándarverðlaun á   9. braut, lukku-púttholan og margt, margt fleira.

Að sjálfsögðu verður búningakeppni eins og venjulega og er þemað í ár: EM 2016

Að móti loknu verður svo standandi veisluhlaðborð að hætti Veislunnar og verðulaunaafhending.

Skráning er í gangi á töflunni í skálanum og stendur til kl. 18.00 í dag.  Hægt er að hringja í síma 561-1930 og láta skrá sig.  

Þátttökugjald: Mót og matur kr. 4.500 – bara mót kr. 2.000 – bara matur kr. 3.500

Aldurstakmark er 20 ár.