Febrúarmót Nesvalla er hafið

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar.

Fyrsta golfhermamót ársins á Nesvöllum er farið af stað og hægt er að spila í mótinu til og með 28. febrúar.

Þátttökuskilyrði:

  • Gild Trackman forgjöf

  • A.m.k. 5 hringir í Trackman sem gilda til forgjafar

  • Greidd leiga í golfhermi á Nesvöllum

Keppt er á hinum stórskemmtilega velli Mammoth Dunes at Sand Valley (Wisconsin, USA).

Keppnisfyrirkomulag:

  • Punktakeppni með forgjöf

  • Höggleikur án forgjafar

  • Hámarksforgjöf: 28

Teigar:

  • Karlar: Teigar 50

  • Konur: Teigar 43

Ef upp kemur tæknileg villa í herminum er heimilt að taka mulligan, en senda þarf útskýringu á nesvellir@nkgolf.is.

Pútt eru stillt á auto-fixed.


Verðlaun

Punktakeppni og höggleikur (efstu þrjú sæti í hvorum flokki):

🥇 1. sæti – 3 klst inneign í golfhermi + 20 körfu boltakort
🥈 2. sæti – 2 klst inneign í golfhermi + 10 körfu boltakort
🥉 3. sæti – 1 klst inneign í golfhermi

Nándarverðlaun verða veitt á öllum fjórum par 3 holum vallarins:
🎯 1 klst inneign í golfhermi á Nesvöllum.


Allar nánari upplýsingar:
📩 nesvellir@nkgolf.is