Eins og fram hefur komið mun stjórn Nesklúbbsins standa fyrir tveimur kynningarfundum fyrir félagsmenn í vor. Þar verður m.a. farið yfir niðurstöður viðhorfskönnunarinnar sem framkvæmd var síðastliðið haust ogfarið yfir reynsluna á að hafa vallarvörð (ræsi) á 1. teig. Þá verða kynntar nýjar teigmerkingar og ný boltarenna, en hvort tveggja verður tekið í notkun í sumar. Fyrri fundurinn fór fram 17. mars og nú er komið að síðari fundinum sem haldinn verður miðvikudaginn 20. apríl kl. 19.30 í golfskálanum. Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta.