Fleiri rástímar, reglur og viðurlög – þetta þarftu að lesa….

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Nú er búið að bæta við rástímum á milli kl. 06.00 og 07.00 á morgnanna.  Rástímar á þessum tíma eru eingöngu fyrir tveggja manna holl og eru 8 mínútur á milli rástímanna.  Hér eftir er því nauðsynlegt að bóka sig á rástíma á þessum tímum.  ATH: að þeir sem mæta án þess að skrá sig á rástíma er með öllu óheimilt að leika völlinn.  Til þess að bóka rástíma á þessum tíma þarf að breyta „aðfangi“ sem kemur upp þegar þú bókar rástíma.  Sjá nánar á meðfylgjandi mynd.

STAÐFESTING Á RÁSTÍMA OG VIÐURLÖG:

  • Frá og með miðvikudeginum 11. júní verður mikilvægara en nokkurntíman áður að staðfesta það að þú sért mætt/mættur.  Það gerum við með því að:
    • Skanna QR kóðann í golfskálanum (sjá meðfylgjandi mynd)
    • Ef golfskálinn er lokaður er hægt að skanna QR kóðann í glugganum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
    • Ef þú getur af einhverjum orsökum ekki skannað QR kóðann er hægt að:
      • Biðja starfsfólk (Hjalta og á skrifstofu) um að staðfesta rástímann fyrir þig
      • Utan skrifstofutíma – biðja starfsfólk í veitingasölu um að staðfesta rástímann fyrir þig
  • Allir félagsmenn sem EKKI staðfesta rástímann munu fá sendan tölvupóst með viðvörun.  Gerist það oftar en einu sinni munu því fylgja viðurlög eins og fram kemur í reglunum um rástímabókanir á heimasíðu klúbbsins.  Við hvetjum þig til þess að lesa vel yfir þær reglur því hér eftir á öllum að hafa gefist kostur á að kynna sér þær og þannig forðast þau viðurlög sem við neyðumst nú til þess að beita.   Smelltu hér til þess að kynna þér ofangreindar reglur.

Munum að allir rástímar eru verðmætir og það á að vera hagur okkar félagsmanna að fara vel með þá.  Afleiðingarnar til misnotkunar eru engum til framdráttar.  Stöndum því í sameiningu vörð um okkar eign og gerum leikinn skemmtilegri.

Með golfkveðju,
Stjórn Nesklúbbsins