Formannspistill

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Golfvertíðin er farin af stað með látum og það er erfitt að kvarta yfir veðrinu sem hefur leikið við okkur síðustu daga. Völlurinn er að koma vel undan vetri þó vissulega hann eigi aðeins í land með að ná þeim gæðum sem við viljum geta boðið upp á.  það eru helst flatirnar sem því miður fengu í sig sýkingu síðastliðið haust sem erfitt hefur verið að ráða við, en Stuart vallarstjóri er engu að síður bjartsýnn á að þær lagist mikið á næstu vikum. 

Mig langar að nýta þetta tækifæri og færa ykkur öllum sem tókuð þátt í vorverkunum og hreinsunardeginum sérstakar þakkir. Ykkar frábæra framlag, sem telja má sem vel á annan mánuð í vinnu fyrir vallarstarfsmenn, skiptir svo miklu máli og gerir okkur kleift að taka á móti sumrinu með glans. Þessi samvinna og andi sjálfboðastarfsins sýnir enn og aftur hvað Nesklúbburinn býr yfir miklum krafti og samheldni félagsmanna.

Þótt völlurinn líti nokkuð vel út, vil ég samt biðla til ykkar allra að leggja ykkar af mörkum til að halda honum þannig. Gangið vel um flatir og teiga, setjið torfur í kylfuför, lagið boltaför á flötum og rakið glompurnar – þetta eru litlu hlutirnir sem á endanum skipta sköpum. Einnig vil ég minna á að huga að leikhraða.  Við viljum öll njóta þess að spila í góðu flæði og án óþarfa biðar.  Bara með því að reyna að halda í við næsta ráshóp á undan okkur erum við búin að gera okkar besta því ef allir gera það verður leikhraðinn góður.

Við höfum nú tekið upp nýja rástímareglu sem kynnt var í upphafi tímabils og við vonum að komi til með að auðvelda sem flestum að komast að á þeim tíma sem hentar.  Við sjáum að þetta virðist fara vel af stað. Ég minni á að allar helstu upplýsingar um bókanir, reglur og annað sem tengist klúbbnum má finna á heimasíðu klúbbsins, www.nkgolf.is, sem við hvetjum ykkur til að fylgjast reglulega með.  Hingað til höfum við boðið upp á að bóka rástíma frá klukkan 07.00 á morgnanna.  Það eru sífellt fleiri morgunhanar sem vilja geta skotist í einn hring fyrir klukkan sjö og er það vel.  Það er ofsalega mikilvægt að við náum að sjá hve mikið og þá ekki síst hvenær félagsmenn eru að leika völlinn.  Á stjórnarfundi í gær var því ákveðið að það yrði einnig opnað fyrir rástíma á milli kl. 06.00 og 07.00.  Til reynslu ætlum við að fylgja fordæmi nágranna klúbba okkar og hafa þá rástíma eingöngu fyrir tveggja manna holl svo áfram verði hægt að skjótast 9 holur.  Einnig mun þetta vonandi koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar geti leikið völlinn án þess að greiða vallargjald, en því miður hefur það gerst öðru hverju.   

Framundan eru áframhaldandi framkvæmdir á vellinum, þar sem meðal annars er stefnt að því að blessaða klósettið við 4. og 5. holu verði loksins sett upp á næstu dögum. Einnig er unnið að því að koma Hafsteini (glompunni á 9. braut) sem fyrst í leik og þá verður vonandi sett torf á 4. teigana öðru hvoru megin við helgi.  Skemmtilegt átaksverkefni var líka kynnt fyrir nokkrum dögum, “Braut í fóstri”, sem ég vona svo sannarlega að félagsmenn taki vel í og almenn og virk þátttaka náist í sumar. 

Að lokum, í ljósi þess að það spurt hefur verið um vinavellina þetta árið vil ég geta þess að Haukur framkvæmdastjóri hefur verið í stöðugum samningaviðræðum við aðra klúbba að undanförnu.  Búið er að setja inn á heimasíðuna þá velli sem nú þegar eru staðfestir fyrir sumarið.  Með nýjum áherslum sem samþykktar voru á stjórnarfundi í gær verður vonandi hægt að ná samningum við fleiri klúbba á næstunni og munum við að sjálfsögðu tilkynna það, en þangað til skuluð þið fylgjast með á heimasíðunni.

Ég hef fulla trú á því að sumarið verði viðburðaríkt og við eigum eftir að eiga marga góða hringi á vellinum og skemmtilegar stundir á pallinum eða í skálanum. Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest á næstu vikum og óska ykkur gleðilegrar golfvertíðar.

Með bestu kveðju,

Þorsteinn Guðjónsson
Formaður