Formannspistill

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagsmenn,

Aðalfundur Nesklúbbsins var haldinn í lok nóvember sl. og var hann í alla staði góður. Umræður voru málefnalegar og uppbyggilegar og endurspegluðu þann kraft og áhuga sem ríkir innan félagsins. Stjórn klúbbsins hélst óbreytt og í kjölfar aðalfundar hefur verið skipað í embætti og nefndir eins og lög klúbbsins gera ráð fyrir. Stjórnin hefur þegar fundað nokkrum sinnum enda ærin verkefni fram undan og nóg að snúast á öllum sviðum starfseminnar.

Eitt af helstu áherslumálum aðalfundar var samband Nesklúbbsins við bæjarstjórn Seltjarnarness og hvernig megi styrkja það enn frekar. Mikilvægt er að bæjarfulltrúar hafi góða innsýn í starfsemi klúbbsins, umfang hennar og það fjölbreytta hlutverk sem félagið gegnir í samfélaginu. Starfsemi Nesklúbbsins hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og þar vegur barna- og unglingastarf þungt. Það starf er ekki aðeins íþróttalegs eðlis heldur hefur einnig mikið uppeldis-, félagslegt og samfélagslegt gildi.

Golfíþróttin er í dag næst fjölmennasta íþróttahreyfingin á Íslandi og ef fram heldur sem horfir verður hún orðin sú fjölmennasta á næstu tveimur til þremur árum.  Það mun þá einfaldlega þýða það að flestir þeir sem stunda einhverja íþrótt á landinu stunda golf.  Nesklúbburinn er þannig íþróttafélag innan ÍSÍ og gegnir mikilvægu hlutverki á sviði forvarna og lýðheilsu. Golfíþróttin er ævilöng hreyfing sem hentar fólki á öllum aldri og stuðlar að reglulegri útiveru, hreyfingu og félagslegum tengslum. Með öflugu starfi fyrir börn, ungmenni og fullorðna leggur Nesklúbburinn sitt af mörkum til bættrar heilsu og vellíðanar íbúa Seltjarnarness og eflir um leið virkt og heilbrigt samfélag.

Nú þegar sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí á þessu ári gefst kærkomið tækifæri til að kynna starfsemi Nesklúbbsins enn betur.  Á næstu dögum og vikum mun koma í ljós hvaða hvaða stjórnmálaflokkar og einstaklingar munu bjóða fram krafta sína í ofangreindum kosningum.  Stjórn Nesklúbbsins mun leggja sig fram við að fylgja eftir umræðum síðasta aðalfundar og óska eftir samtölum við alla flokka og frambjóðendur með hag Nesklúbbsins að leiðarljósi.  Þannig getum við aukið skilning á því mikilvæga starfi sem fram fer innan félagsins.  Slíkt samtal er lykill að farsælu samstarfi til framtíðar.

Að lokum vil ég vekja athygli félagsmanna á því að prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fer fram nú á laugardaginn. Ég hvet þá félagsmenn sem eru í Sjálfstæðisflokknum á Nesinu til að nýta sér þann rétt og taka þátt í prófkjörinu.

Saman getum við unnið að því að efla Nesklúbbinn enn frekar og tryggja að starfsemi hans sé vel skilin og metin sem mikilvægur hluti af samfélaginu á Seltjarnarnesi.

Þorsteinn Guðjónsson
Formaður